ROPE YOGA - HEILSULAUSNIR
RSS tengill
17.11.2008 23:45:44 / Heilsulausnir

Hlúðu að heilsu þinni !

Rannsóknir hafa sýnt að það skilar allt að 50% meiri árangri að hafa þjálfara sér til aðstoðar þegar æft er.

Ég býð upp á heildræna lausn og persónulega ráðgjöf til að byggja upp eða viðhalda góðri heilsu.

Ekki hika við að hafa samband.....
Stígðu skref fram á við og njóttu lífsins til fulls!

Ekki gera bara eitthvað.
Fáðu ráðgjöf og eftirfylgni.

Upplýsingar í síma 772 2332


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 00:16:35 / Heilsulausnir

Ný námskeið að byrja 3. og 4. nóv.

Ég er komin með fína aðstöðu hjá Toppsport Heilsulind í Gagnheiði 43 á Selfossi.

Það eru örfá pláss laus á nýju námskeiðin sem eru að byrja.
Tímar:
Mán. og mið. kl 16.00
Þri. og fim. kl 8.30
Þri. og fim. kl 17.20

Einnig er fyrirhugað að byrja með námskeið á Þri. og fim. kl 13.40.

Tímarnir eru 70 mín.
* Endurnærandi, styrkjandi, liðkandi og mýkjandi æfingar í böndum og góðar teygjur.
* Djúp öndun sem eykur upptök súrefnis í líkamanum, eflir starfsemi sogæðarkerfisins og  
  losar burt spennu úr líkamanum.
* Fróðleg, áhugaverð og styrkjandi hugleiðsla sem eflir jákvæða sjálfsmynd.

Upplýsingar og skráning í síma 772 2332

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 11:59:00 / Heilsulausnir

Ný námskeið !

Breyttu lífi þínu og líðan !
Ný námskeið í Rope Yoga byrja 4. og 5. mars.

BYRJENDANÁMSKEIÐ - Takmarkaður fjöldi í hóp !
Hentar fyrir allann aldur, allar líkamsgerðir og bæði kyn.
Einstök leið til bæta og auka almennt hreysti sem og til að ná sér eftir veikindi, slys eða annað.

Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að njóti betri tengsla við eigin líkama og huga.
Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi og að nemandinn öðlist aukinn liðleika, styrk, samhæfingu og vellíðan.

Kennt er heilsuræktarkerfi Rope Yoga í bekkjunum og böndunum og kenndir grunnþættir öndunar og slökunar, ásamt teygju- og flæði-æfingum.

Farið er í undirstöðuatriði 7. þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd.


FRAMHALDS - ÁSTUNDUNARNÁMSKEIÐ
Takmarkaður fjöldi í hóp !
Komdu með í skemmtilegt ferðalag !
Hentar fyrir alla sem hafa lokið hafa byrjendanámskeiði í Rope yoga.

Ástundun Rope Yoga eykur styrk, úthald, liðleika og samhæfingu og ásamt því að leiða af sér ríkulega bætta líðan á öllum sviðum.
Iðkendur verða meira meðvitaðir um líkama sinn, sál og huga og það skilar þeim inn á nýjar leiðir sem þeir jafnvel vissi ekki að væru til staðar.

Ásamt æfingnum í böndunum er löggð meiri áhersla á öndunaræfingar, flæðiæfingar, teygjur og slökun. 
Unnið er að marvissum ásetningi út frá lífsviðhorfum Rope Yoga sem grundvelli að lífi í kærleika og umhyggju.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 857 6157.

Kærleikskveðja Bryndís

 

 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 09:06:24 / Heilsulausnir

Ný námskeið að byrja !

Gleðilegt og farsælt komandi ár!
Ég óska öllum heilbrigðis og velsældar.

Ný byrjenda og ástundunnarnámskeið eru að hefjast.

Skráðu þig núna í síma 857 6157.

Byrjendanámskeið:

Markmið námskeiðsins er að nemendur njóti betri tengsla við eigin líkama og huga. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi og að nemandinn öðlist aukinn styrk, samhæfingu og liðleika. Farið er í gegnum heilsuræktarkerfi Rope Yoga í bekkjunum og kenndir grunnþættir öndunar og slökunar, ásamt teygju- og flæði-æfingum. Farið er í undirstöðuatriði 7. þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd.

Ástundunarnámskeið:

Ástundun Rope Yoga eykur styrk, úthald, samhæfingu og liðleika. Ástundunar námskeiðin leggja áherslu á öndunaræfingar, flæðisæfingar, stöðuæfingar, teygjur og slökun. Kennd eru lífsviðhorf Rope Yoga sem grundvöllur að lífi í kærleika og umhyggju. Skilyrði til þátttöku er að viðkomandi hafi lokið byrjendanámskeiði í Rope Yoga.

 
 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 01:46:08 / Heilsulausnir

Áhrifaríkt 4 vikna kynningarnámskeið

Frá 26. nóv. - 19. des. verð ég með kynningarnámskeið í Rope yoga.

Tímarnir eru 60 mín í senn, 2x í viku.   TAKMARKAÐUR FJÖLDI  í HÓP!

Markmið námskeiðsins er að iðkendur kynninst því hvað Rope yoga gengur útá og læri undirstöðuatriðin í að njóta betri tengsla við eigin líkama og huga Iðkandinn upplifir þá dásamlegu vellíðan sem fylgir því að öðlast aukinn styrk, samhæfingu og liðleika,  ásamt því að losa út spennu og upplifa líkamlega og andlega ró.  Kenndir verða grunnþættir öndunar og slökunar, æfingarnar í bekkjunum/böndunum, ásamt teygju- og flæðiæfingum og farið í undirstöðuatriði 7. þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd.

Skráning í síma 857 6157.

Heildræn  þjálfun  fyrir  líkama,  huga  og  sál.

Slökun – Vellíðan- Orka - Þol – Styrkur – Liðleiki

 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 19:04:14 / Heilsulausnir

Miranda´s fréttir !

Kíkið á frábæru tilboðin og jólatilboðin hér til vinstri !

Ef þú hefur áhuga á að vera á Miranda´s póstlistanum hjá mér og fá sendar upplýsingar um tilboðin í hverjum mánuði þá vinsamlegast sendu mér póst á bryndismirandas@simnet.is

Alltaf er velkomið að hafa samband við mig bæði með tölvupósti og símleiðis ef þig vantar að panta vörur.

Einnig getur þú haft samband við mig ef þú hefur áhuga á að bóka létta heimakynningu á vörunum eða tilboðunum eða námskeið það sem ítarlega er farið í að kenna notkun vörunnar.

Gestgjafar fá alltaf veglega gjöf og geta nýtt sér góð tilboð.

Auk þess eru alltaf mjög góð tilboð sem allir geta nýtt sér !  (Sjá Miranda´s tilboð og jólatilboð til vinstri)

 Kærleikskveðja

Bryndís Guðmundsdóttir, Miranda´s sölufulltrúi og leiðbeinandi frá 1999.

S: 857 6157.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 12:31:18 / Heilsulausnir

BREYTTU LÍFI ÞÍNU OG LÍÐAN !

Ný námskeið í Rope Yoga byrja þann 5. og 6. nóv.

Markmið námskeiðsins er að nemendur njóti betri tengsla við eigin líkama og huga. Lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt atgervi og að nemandinn öðlist aukinn styrk, samhæfingu og liðleika.

Farið er í gegnum heilsuræktarkerfi Rope Yoga í bekkjunum og kenndir grunnþættir öndunar og slökunar, ásamt teygju- og flæði-æfingum.

Farið er í undirstöðuatriði 7. þrepa hugræktarkenninga Rope Yoga með sérstaka áherslu á að efla jákvæða sjálfsmynd.

Taktu ábyrgð á lífi þínu og líðan og komdu með í skemmtilegt ferðalag !

SKRÁNING ER HAFIN  -  TAKMARKAÐUR FJÖLDI Í HÓP !

Allar nánari upplýsingar og skráning í síma 857 6157.

Kærleikskveðja Bryndís


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:43:18 / Heilsulausnir

MORGUNTÍMAR !

Nú erum morguntímarnir byrjaðir á þriðjud. og fimmtud. kl 8.30.

Það eru laus pláss og ennþá velkomið að koma inn í og bætast í hópinn !

Þetta eru frábærir tímar, hressandi og orkugefandi, þannig að orkan helst jöfn yfir allann daginn og því ekki spurning að byrja daginn með umhyggju við sjálfan sig í Rope yoga.

Sími 857 6157, Bryndís


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 11:01:15 / Heilsulausnir

Hressandi morguntímar !

BYRJAÐU DAGINN Í UMHYGGJU VIÐ SJÁLFA/N ÞIG :)  

2. okt. byrjar 8 vikna námskeið sem verður á þriðjud og fimmtud kl 8.30 alls 16 skipti.

Þetta eru hressandi, styrkjandi, slakandi og endurnærandi tímar fyrir líkama og sál.

Takmarkaður fjöldi í hóp, tryggðu þér pláss, s.l. vetur var biðlisti í þessa tíma !

Skráning og frekari upplýsingar í síma 857 6157. Kærleikskveðja Bryndís.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 10:16:20 / Heilsulausnir

Ný námskeið - skráning er hafin !

Ný námskeið byrja 17. og 18. sept. Námskeiðin verða 2x í viku, 70 mín í senn, alls 14 skipti.

Námskeiðin fara fram í notalegum sal í húsakynnum Karlakórs Selfoss við Eyraveg 67 og verða á eftirfarandi tímum:

Mánudaga og Miðvikudag   kl. 16.15 - 17.25  - FULLT

Þriðjudaga og Fimmtudaga kl. 17.30 - 18.40 - FULLT 

Þriðjudaga og Fimmtudaga kl. 08.30 - 09.40 - Byrjar 2. okt. - LAUS PLÁSS

Fyrirhugað er að bæta við fleiri tímum og verða þeir auglýstir síðar !

Allar nánari upplýsingar veiti ég í síma 857 6157.

Með kærleikskveðju Bryndís.

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 01:49:04 / Heilsulausnir

BREYTINGAR og drög að haustdagskrá !!!

Þessa dagana vinn ég að því að finna hentugt húsnæði fyrir Rope Yoga kennsluna en vegna eigendaskipta á því húsnæði þar sem ég var þá missti ég þá frábæru aðstöðu sem ég var með.

Ég stefni á að byrja með ný námskeið bæði fyrir byrjendur og lengra komna strax í byrjun september eða um leið og kostur er.

Fyrirhugað er að vera með svipaða tímatöflu og verið hefur þ.e.a.s morguntíma, tíma eftir hádegi og svo seinnipartstíma.

Námskeiðin verða 8 vikur, mæting 2-3 sinnum í viku og hver tími 70 mín. sem skiptist í æfingar í böndum auk flæði æfinga, teygjur, slökun og hugleiðslu.

Ég treysti því að flestir ættu að geta fundið tíma sem hentar sér, en minni á að það er takmarkaður fjöldi í hverjum hóp og verð ég aðeins með 4-5 hópa á viku.

Ég er byrjuð að taka niður skráningu á væntanleg námskeið og veiti fúslega allar frekari upplýsingar í síma 857 6157.

Með kærleikskveðju, Bryndís

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 01:53:53 / Heilsulausnir

Fréttatilkynning !

Ég vil byrja á að þakka öllum þeim sem hafa komið á námskeið hjá mér fyrir ánægjulega samfylgd og lýsa því yfir hvað það er búið að vera stórkostlegt að fá að vera vitni af öllum þeim umbreytingum sem hver og einn iðkandi hefur náð að laða fram bæði á líkama sínum og sál.

Þó nokkuð margir hafa verið að finna sig mjög vel og verið í fastri ástundun og þeir einstaklingar eru stöðugt að ná framförum og upplifa eitthvað nýtt í hverjum einasta tíma.

Ég vil minna þá á sem hafa tekið sér frí eða komið á 1 eða 2 námskeið og ætlað að koma svo aftur seinna og halda áfram aftur, að hugsa til þess hversu vel þeim leið í tímunum við að beina athyglinni inn á við að sjálfum sér og upplifa líkama sinn, sál, huga og tilfiningar með þeim hætti sem við þjálfum okkur í að gera, þ.e.a.s. að vera meðvituðuð um eigin líkama, sál, tilfiningar og líðan og vakna út frá því til vitundar og ábyrgðar á eigin lífi, vellíðan og velferð. Einnig bið ég ykkur að leiða hugann að því hvað þið upplifðuð góða slökun bæði í tímunum sjálfum sem og minni spennu og meiri innri frið að tímunum loknum, svo ég tali nú ekki um aukinn líkamlegann styrk og liðleika og betri svefn og hvíld.

Ég er núna að fara í frí en stefni á að byrja aftur með lokuð námskeið bæði fyrir byrjendur og lengra komna upp úr miðjum ágúst eða um mánaðarmótin ág/sept.

Ég hlakka til að sjá sem flest ykkar og helst öll ykkar aftur og treysti því að þið hafið a.m.k. lært það að ef þið eruð meðvituð um líf ykkar, með vakandi vitund og til staðar í núinu og leyfið framgang í lífinu, þá geta draumar ykkar orðið að veruleika hverjir sem þeir eru !

Einnig hlakka ég til að sjá ný andlit og treysti því að þeir sem telja sig eiga skilið að lifa í umhyggju, góðvild og kærleika gangnvart sjálfum sér, gefi sjálfum sér tækifæri til að upplifa þessa árangursríku heilsuræktaraðferð til umbreytinga og betra lífs.

 Með umhyggju- og kærleikskveðju, Bryndís Guðmundsdóttir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 23:09:37 / Heilsulausnir

Rope Yoga einkaþjálfun !

Vilt þú ná hámarks árangri án sárauka og hörku?

Hefur þráð að gera breytingar og áttu þér drauma ?    

Einkaþjálfun Rope Yoga er mjög áhrifarík leið til varanlegra  umbreytinga á líkama og sál, iðkandinn er hvattur til ábyrgðar og  lærir að hlusta á líkamann og veita honum umhuggju-sama og mjög  árangrsríka  og heilræna þjálfun sem mótar vöðva, byggir upp stryk, liðleika, þrek og þol, sem svo aftur leiðir  til hugrekkis, vellíðunar og gnóttar af lífshamingju.

Draumar þínir verða aðeins af veruleika ef þú leyfir framgang í lífinu.

Vertu breytingin í þínu lífi og þú munt laða það að þér það sem þú þráir mest!

INNIFALIÐ: 12 skipi í einkatíma í Rope Yoga, góð ráð um aðra heyfingu, heilsuhandbók full   af fróðleik,  næringarráðgjöf, vigtun, mæling, hvattning   og eftirfylgni. Vöðvaslökunarnudd, andlits- og höfuðnudd. Einnig fylgir bókin með hugræktarkennigum Rope Yoga eftir Guðna Gunnarsson.

Þú ert velkomin í ört stækkandi hóp lífsglaðra og ánægðra Rope Yoga iðkenda.           

 Kynntu þér þessa áhrifamiklu leið ef þún átt þér drauma og vilt láta þá rætast!

Ég hlakka til að heyra frá þér !

Kærleikskveðja Bryndís Guðmundsdóttir.                                                                     

ATH ég hef fullgild réttindi og diploma í einkaþjálfun og Rope Yoga kennslu.                           Einnig hef ég lokið námskeiðum og hef góða þekkingu og reynslu á vöðvaslökunarnuddi, ilmolíuandlitsnuddi og höfuðnuddi. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 13:22:31 / Heilsulausnir

Mikið þakklæti !

Ég vil þakka öllum sem hafa sótt hjá mér námskeið í Rope yoga innilega fyrir fyrir ánægjulegar samverustundir og er ég mjög þakklát fyrir að hafa fengið að njóta með ykkur þessara stunda. Það hefur gefið mér mjög mikið að fá að vera vitni af þeim stórkostlegu framförum og breytingum sem hver og einn hefur náð að laða fram bæði á líkama og sál með ástundun og með því að sýna áhuga og ábyrgð á eigin velferð og líðan.

Mjög margir hafa komið að máli við mig og lýst yfir ánægju sinni með námskeiðin, bæði æfingarnar, kennsluna og þá þjónustu sem ég kappkosta að veita og því væri Það yndislegt fyrir starfsemina ef þið mynduð vilja skrifa umsögn inná Gestabókina  og skýra þar frá ykkar upplifun og reynslu, hvaða árangri þið hafið náð og hvernig ykkur hefur líkað. Einnig er það vel þegið ef þið sendið mér póst.  

Með umhyggju, kærleika og miklu þakklæti fyrir.

Bestu kveðjur, Bryndís Guðmundsdóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 00:17:31 / Heilsulausnir

Góð aðsókn !

Mjög góð aðsókn er í tímana í RopeYoga og ánægjulegt að það sé alltaf  að bætast í hópinn fólk sem vill kynna sér þetta heildræna heilsuræktarkerfi með það fyrir augum að axla ábyrgð á eigin vellíðan, hreysti og ásetningi í lífinu.

Vertu þú breytingin í þínu lífi, leyfðu framgang og sjáðu drauma þína verða að veruleika.

Lífið er ferðalag en ekki áfangastaður, njóttu ferðalagsins í umhyggju, kærleika og þakklæti og leyfðu þér að lifa lífinu til fulls hvert einasta augnablik.

Kærleikskveðja, Bryndís. S: 846 5203.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 6919
Leitarbox

Dagsetning
30. júlí 2010
Klukkan